fimmtudagur, 17. september 2009

Við Buffet notum ekki talhólf farsimans.


Sennilega hefði bankakrepppu heimsins - og þar með þeirri íslenzku - verið afstýrt ef yfirmenn brezka Barclays bankans hefðu ekki treyst á það að bandaríski auðmaðurinn Warren Buffet notaði talhólf farsíma síns. Buffet er nálægt áttræðu, og rétt eins og ég, þá notar hann ekki talhólf. Milljónir nota hvorki talhólf né myndavél farsíma sína, né hlaða niður tónlist á hann. Þetta skilja ekki ungu bankamennirnir, sem fara með örlög efnahagslífs heimsins.

Þarna á sér stað menningarmismunur, sem getur orðið afdrifaríkur. Það er í raun furðulegt að Barclays-ofurbankastjórarnir hafi ekki sent sína menn í Omaha í Nebraska heim til gamla mannsins til þess að ganga úr skugga um að hann hafi fengið boð, sem hefði getað bjargað Lehman Brothers og um leið íslenzku bönkunum.

En þá væru Íslendingar kannski bara ennþá að ferðast um á einkaþotum, brjóta niður einbýlishús til að byggja stærri og éta gullflögur. Kannski þurftum við á hruninu að halda til þess að komast í kynni við hin raunverulegu gildi lífsins.

Engin ummæli: