föstudagur, 4. september 2009

STEF er dautt fyrirkomulag


Samtök tónskálda og eigenda höfundarréttar (STEF) eru tímaskekkja á þessari öld rafrænnar miðlunar. Nú er Google að setja upp kerfi rafrænna bóka þar sem notendur greiða lítilræði fyrir aðgang að bókum en Google miðlar höfundarþóknun eftir notkun. STEF hefur ekki haft gagnsætt kerfi á greiðslum þóknana og hefur farið offari í að innheimta STEF-gjöld af notkun, þar sem þegar er borgað fyrir flutning, svo sem fyrir notkun útvarpsefnis á vinnustöðum.

Tæknisprotar á borð við Google, iTunes og Amazon munu gera þessa gömlu inniheimtuaðferð úrelta og óréttláta og það þarf að huga að lagabreytingum.

Engin ummæli: