Pempíuorðalag á fréttum af ofbeldisverkum er ekki við hæfi. Netvísir segir svo í frétt um að 60% þeirra afríkumanna, sem búa í Moskvu, hafi orðið fyrir ofbeldi: "80% þeirra hafa orðið fyrir munnlegum athugasemdum vegna litarháttar..." Við hvað á blaðamaðurinn? Að þeir hafi verið spurðir spurninga á borð við þessa: "Afsakið, en er hörundslitur yðar ekki full dökkur?"
Auðvitað ekki. Þeir hafa orðið fyrir aðkasti og lítilsvirðingum rasista, en sú manngerð virðist forherðast og þrífast í efnahagskreppu, líkt og gerðist í Þýzkalandi millistríðsáranna, þegar sú þjóð var neydd til þess að greiða óhóflegar stríðsskaðabætur. En það mál leiðir svo aftur hugann að Icesave...
þriðjudagur, 1. september 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli