mánudagur, 9. mars 2009

Áhrif þvottavélarinnar á kvenfrelsið


Fyrir áratug flutti ég fyrirlestur á kvennakvöldi í Jónshúsi í Kaupmanna- höfn að beiðni kvennaklúbbsins þar. Fyrirlesturinn kallaði ég "Áhrif þvottavélarinnar á kvenfrelsið." Þetta var að hluta í gamni gert, en ég skoðaði samt nokkuð vel hagskýrslur áratugi aftur í tímann og rakti svo þróun kvenfrelsisins í takti við tilkomu heimilistækja, allt frá þvottavélinni og til örbylgjuofnsins.

Til að hljóðskreyta þetta tímasetti ég svo nokkur helztu og vinsælustu lög Elvis heitins Prestley inn í söguna. Glærurnar (þetta var jú fyrir daga PowerPoint-æðisins) sýndu og tímasettu fækkun barneigna, vaxandi þátt kvenna í framhaldsnámi og síðar í ábyrgðarstörfum sem beina afleiðingu af auknum tíma, sem vannst með því hve heimilistækin tóku byrðar af daglegum skyldustörfum konunnar.

Ég hef ekki heyrt meira um þetta mál fyrr en ég rakst svo á þetta í Mogganum í dag, þar sem vitnað er í hið gagnmerka tímarit Páfagarðs L'Osservatore Romano um þetta sama mál. Gaman að Benedikt páfi skuli hafa komizt að svipaðri niðurstöðu, þótt gamli maðurinn vanmeti hins vegar áhrif pillunnar.

Engin ummæli: