Þegar Atkins-megrunarkúrinn var í tízku og Ásmundur Stefánsson gaf út sitt eigið afbrigði fóru margir í kolvetnisbindindi en átu feitan mat og egg í öll mál. Meðal þeirra var Davíð Oddsson, þá forsætisráðherra. Síðan þá hefur Atkins sjálfur dáið, of feitur, Ásmundur bætt á sig talsverðu og Davíð veiktist alvarlega og hefur síðan bætt verulega á sig, ef marka má sjónvarpsmyndir.
Eitt af því sem boðberar kolvetnafordómanna bölsótuðust út í var kartöflur. Ég man eftir því þegar ég kom í Borders bókabúðina í New York og keypti veglegar matreiðslubækur um kartöflur og brauð, þá sagði kassadaman kímin: "You are not into the carbohydrate diet thing, are you?"
Nú eru kartöflurnar að fá uppreisn æru, og á heilsusíðu New York Times segir að með einni meðalstórri bökunarkartöflu mæti maður hálfri dagsþörf fyrir C-vítamín og B6-vítamín, auk trefja og fleiri efna. Mikilvægast er að borða flusið - hýðið - því þar séu flest bætiefnin að finna. Því meiri litur sé í kartöflunni, þeim mun hollari er hún. Rauðar eru því bráðhollar.
Hættan við að borða kartöflur er ekki í kartöflunni heldur meðlætinu. Í stað kryddsmjörs er í fínu lagi að nota jógurt.
fimmtudagur, 26. febrúar 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli