miðvikudagur, 11. mars 2009

Leyfið börnunum að hvílast

Enskur yfirkennari hefur skorað á skólayfirvöld að hefja kennslu tveimur tímum seinna á morgnana svo unglingar fái nægan svefn. Það er enn meiri ástæða til þess að gera slíkt hér á landi vegna skammdegisins, svo börn fari í skólann í björtu. Í raun þyrfti að laga klukkuna fyrst. Við erum nefnilega enn á gömlum sumartíma og samkvæmt hnattstöðu fara börn í Reykjavík í skólann næstum tveimur tímum of snemma.

Þetta má laga með því að færa staðartíma Íslands aftur um tvo tíma. Við myndum þá verða mitt á milli evróputíma og austurstrandartíma Ameríku. Við töpum engri birtu á sumarkvöldum fyrir vikið en myndum fara til vinnu og í skóla í björtu mestallan veturinn,.

Engin ummæli: