fimmtudagur, 26. febrúar 2009

Efnahagsástandið veldur heilsubresti

Við nokkuð ítarlega læknisskoðun og rannsóknir síðustu vikur komst heimilislæknir minn að því að blóðþrýstingur minn hefði hækkað úr hófi síðustu þrjú ár, eftir að ég fluttist heim til landsins og til mikilla muna frá því í fyrra. Þetta þýðir þrennt; breytt mataræði, aukna hreyfingu og daglegan töfluskammt.

Næstu daga komst ég svo að því að óvenju margir vinir og kunningjar hafa orðið að fara á töflukúr vegna háþrýstings og ég fór að lesa mig betur til og gúgla. Þá rakst ég á athyglisverða frétt í Boston Globe þar sem greint er frá faraldri háþrýstings í kjölfar efnahagshrunsins í heiminum. Kvíði og áhyggjur um afkomu og framtíð er alvarlegur streituvaldur - og lakari ráð fólks valda því að það lætur undir höfuð leggjast að fara í læknisrannsóknir eða aðgerðir.

Hér á landi höfum við verið að þokast í átt að einkarekstri í heilbriðistþjónustunni, sem getur orðið upphaf að félagslegri stéttaskiptingu. Ég hef sjálfur dæmi: Í vetur komst ég í skurðaðgerð á öxl hjá ágætri einkastofu þar sem ég hafði verið á biðlista. Ástæðan var sú að fólk hafði afpantað aðgerð þar sem það þurfti sjálft að reiða út hátt á annað hundrað þúsund króna fyrir aðgerðina, þótt svo sjúkratryggingar myndu endurgreiða hlutfall þess. Annað dæmi: Ég pantaði tíma hjá tannlækni mínum í síðustu viku, en fékk þá að vita að hann væri fluttur til Noregs. Viðskiptin hjá tannlæknum hefðu minnkað um helming frá bankahruni.

Atvinnuleysi, kjaraskerðing og afkomukvíði eru farin að setja mark sitt á þjóðarheilsuna.

Engin ummæli: