Óhlýðni er réttur borgaranna í lýðræðisríki til að afturkalla umboð, sem veitt hafði verið ráðamönnum, sem síðan brugðust trausti. Það getur birzt í mörgum myndum; embættismanni ofbýður valdníðsla stjórnvalds og uppljóstrar um það til fjölmiðla. Þannig brást Mark heitinn Felt trúnaðarheiti sínu sem starfsmaður bandarísku leyniþjónustunnar til þess að aðstoða unga blaðamenn við Washington Post við að koma upp um glæpsamlegt athæfi Nixons forseta. "Deep Throat" braut trúnað og hrundi Watergate málinu af stað í þágu lýðræðisins.
Nú ofbýður íslenzku þjóðinni hvernig farið hefur verið ránshendi um sparnað og lífeyri almennings, hvernig heil þjóð hefur verið hneppt í skuldafangelsi vegna óheilags bandalags gráðugra peningafursta, eftirlitsmanna, sem áttu að gæta þeirra og ráðamanna, sem áttu að setja leikreglur um fjármálalífið og framfylgja því. Vænta má að margir, sem annars eru bundnir trúnaði, muni á næstunni upplýsa rannsóknarnefnd um bankahrunið um vitneskju sína um ósiðlegar og/eða ólöglegar athafnir banka- fjármála- og ráðamanna.
Almenningur hefur staðið hljóður og ásakandi á Austurvelli hvern laugardag og látið þannig andúð sína í ljós. Friðsamleg mótmæli eru fyrsta viðvörun. Við þeim verður að bregðast. Ella tekur við vaxandi harka og borgaraleg óhlýðni færist í það form, sem við höfum aldrei séð og vonast til að þurfa aldrei að upplifa í landi okkar.
Stjórnvöld verða að upplýsa almenning án tafar um gang mála. Ella sviptir almenningur þau umboði sínu með þeim hætti, sem mun kallast nauðvörn.
laugardagur, 17. janúar 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli