miðvikudagur, 10. desember 2008

"svo sem vér og fyrirgefum..."

Nú á fertugsafmæli tölvumúsarinnar er ég að jafna mig eftir skurðaðgerð á öxl, sem í fyrstu mátti ætla að hefði orsakast af áratuga misnotkun axlarliðarins í þágu tölvunnar, en reyndist vera nokkru verra og kalla á meiri aðgerð.

En hvað um það, bati og endurhæfing tekur sinn tíma og gefur manni næði til þess að lesa sig til um heilsufræðileg málefni. Í þeim lestri rakst ég á grein um rannsóknir við félagsvísindadeild Michigan háskóla í Ann Arbor annars vegar og við Tennessee háskóla í Knoxville, sem báðar leiddu í ljós þá athygliverðu niðurstöðu, að með því að sýna hjartahlýju og fyrirgefa öðrum geti maður lækkað eigin blóðþrýsting og hægt á hjartslætti og styrkt ónæmiskerfi líkamans.

Þessi læknisráð var nú reyndar líka að finna bæði í Matteusar- og Lúkasar-guðspjöllum nýja testamentis Biblíunnar (og víðar í því riti) þar sem áherzla er lögð á gildi fyrirgefningarinnar.

Reiði og óvild í garð þeirra, sem hafa brotið á manni, er okkur sjálfum streituvaldur og sem þráhyggja getur hún lagst á heilsuna með skaðlegum afleiðingum, aukið á kvalir og grafið undan hæfileika líkamans til þess að lækna sín eigin sár. Maður þarf svo sem ekki að vera neinn Gandí til þess að fyrirgefa öðrum það sem þeir hafa gert á hlut manns. Þetta er list sem má læra rétt eins og hvert annað tungumál, er haft eftir prófessor við Stanford háskólann í Kaliforníu, sem bendir á fjögur grundvallaratriði:

  • Vertu staðfastur og einlægur. Þú fyrirgefur öðrum sjálfs þín vegna en ekki vegna þeirra.
  • Láttu liðið vera liðið. Minntust þess að særðar tilfinningar og líkamleg vanlíðan þín núna kann að stafa af einhverju sem þér var gert fyrir löngu síðan.
  • Leitaðu að því uppbyggilega. Þú gerir sjálfum þér verst með því að endurlifa í huganum gamalt mótlæti eða óréttlæti, sem þú mættir. Notaðu tímann og kraftana á eitthvað jákvætt framundan.
  • Lifðu lífinu í þína þágu. Sú hefnd er sætust að hafa ekki látið mótlætið brjóta þig niður. Með því að vera upptekinn af því, sem þér var gert, er aðeins sigur þeirra, sem það gerðu. Með því að losa sig undan gremjunni hefur þú sjálfur unnið sigur.

Ég er reyndar ekki frá því að þetta síðasta atriði sé komið frá Konfúsíusi hinum kínverska

Engin ummæli: