Íslendingum er einkar lagið að kappræða til hlítar um aukaatriði en forðast kjarna málsins í lengstu lög. Þetta er þekkt þjóðareinkenni, sem margir koma auga á, sem kynnast Íslendingum. Annað, sem greinir okkur frá norrænu frændfólki er sú árátta að telja sig hafa vit á öllum málaflokkum, nægilega vel til þess að grípa inn í umræður þeirra, sem þó eiga að vera læsir á vandann.
Ég minnist þess ekki úr almannaumræðu í þeim löndum, þar sem ég hef búið, að aðrir taki almennt til máls en þeir, sem hafa vissa lágmarksþekkingu og helzt betur. Þrátt fyrir þetta tek ég sjálfur þátt í hinni nýju þjóðaríþrótt; að hafa vit á málum. Held mig þó við svið, þar sem ég tel mig hafa kynnt mér mál en læt Eurovision eiga sig, handbolta og séð-og-heyrt Íslendingana, sem eru heimsfrægir um allt Ísland.
Ég hef fylgst að venju með Davos gegn um daglegan lestur blaða og þykist sjá að þar sé umræðan farin að verða meira niðri á jörðinni en áður tíðkaðist. Bankamenn eru syndaselirnir og Zarkozy boðaði nýjan og mannlegan kapítalisma. Það var minna af ungstjörnum en áður, en þó mun Björgólfur Thor hafa mætt ásamt Íslandsforseta, enda hafa þeir áður setið saman í einkaþotum. Melinda Gates var mætt á staðinn ásamt manni sínum og tilkynnti um 10 milljarða dollara framlag þeirra hjóna næsta áratug til bólusetninga barna í þriðja heiminum. Þau hjón eru hin viðfeldna ásýnd kapítalismans.
Davos er kirkjudagur heimskapítalismans og þar var ekki ákveðið að leggja hann niður. Þvert á móti. Menn vilja bara passa að bankadrengirnir flytji ekki allir lögheimili sitt til Zug í Sviss til þess að losna undan hátekjuskatti.
Við það að lesa Davos fréttir og horfa á viðtöl Richard Quest á CNN við stórstjörnur heimspólitíkurinnar og auðvaldsins fór ég að leiða hugann að því hvað væri brýnast fyrir Íslendinga að gera til þess að rísa upp úr þeirri eymd, sem þjóðin hefur sokkið í. Það er gott og brýnt að gera upp hrunið, ná illa fengnu fé til baka og sjá til þess að hinir brotlegu afpláni refsingu. Einhverja refsingu.
En brýnna er að endurmeta atvinnulífið í heild og leggja áherslu á störf, sem afla raunverulegra innistæðna í hagkerfið (les: gjaldeyri) en gæta þess um leið að kála ekki starfsreynzlu og þekkingu, sem hefur áunnizt. Í útrásarvímunni glataði þjóðin trúnni á störf, sem krefjast verkþekkingar og vinnu.
Það verður erfiðara um sinn að afla erlends fjár til nýrra verkefna á Íslandi en alls ekki útilokað. Það þarf bara að hafa fyrir því og að rækta sambönd, skapa traust og standa við orð okkar. Grunnur að því er að hætta sjálfsvorkunn og blindingsleik og að vinna með Hollendingum og Bretum að lausn á Icesave málinu, sem geti orðið okkur til sóma og skapað velvilja í okkar garð í þessum mikilvægu viðskiptalöndum okkar. Hrokafullur málflutningur eins og við höfum orðið vitni að verður um skamma stund skemmtiefni erlendra fjölmiðla, en grefur undan trúverðugleika okkar til lengri tíma litið.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli