sunnudagur, 12. júlí 2009

Mann verkjar í hjartað

Ég skil ekki það hugarfar, sem er svo algengt víða í Bandaríkjum, að fólk berst með öllu afli, sannfæringu og jafnvel vopnum gegn læknum, sem eyða fóstri hjá ráðvilltum unglingsstúlkum, en telur sjálfsagt að senda börnin sín til þess að falla í stríði, sem engum gagnast en leiðir hörmungar yfir milljónir manna.

Þetta er að vísu minnihluti Bandaríkjamanna, einkum í suðurríkjunum, á svokölluðu "biblíubelti" en þaðan kemur meirihluti þessa unga fólks, sem skráir sig í herinn og fer til Afganistan og Írak.

Ég sé engan meiri glæp en þann að stofna til stríðs - að því er virðist í þeim tilgangi að verja stóra viðskiptahagsmuni - en undir því hræsnisfulla yfirskini að verið sé að innleiða lýðræði í heimshluta, sem er ekki reiðubúinn fyrir slíkt.

Mann verkjar í hjartað í hvert sinn, sem fréttir berast af því að ungt fólk hafi fallið í þessum tilgangslausa ófriði.

Engin ummæli: