Ég skil ekki það hugarfar, sem er svo algengt víða í Bandaríkjum, að fólk berst með öllu afli, sannfæringu og jafnvel vopnum gegn læknum, sem eyða fóstri hjá ráðvilltum unglingsstúlkum, en telur sjálfsagt að senda börnin sín til þess að falla í stríði, sem engum gagnast en leiðir hörmungar yfir milljónir manna.
Þetta er að vísu minnihluti Bandaríkjamanna, einkum í suðurríkjunum, á svokölluðu "biblíubelti" en þaðan kemur meirihluti þessa unga fólks, sem skráir sig í herinn og fer til Afganistan og Írak.
Ég sé engan meiri glæp en þann að stofna til stríðs - að því er virðist í þeim tilgangi að verja stóra viðskiptahagsmuni - en undir því hræsnisfulla yfirskini að verið sé að innleiða lýðræði í heimshluta, sem er ekki reiðubúinn fyrir slíkt.
Mann verkjar í hjartað í hvert sinn, sem fréttir berast af því að ungt fólk hafi fallið í þessum tilgangslausa ófriði.
sunnudagur, 12. júlí 2009
fimmtudagur, 2. júlí 2009
Íslands aðkomumenn
Hugtakið "aðkoma" tröllríður nú íslenzkum fjölmiðlum. Í stað þess að fjalla um þátttöku, aðild, hlutdeild eða íhlutun, svo nokkuð nefnt, þá er æ oftar gripið til hins óljósa hugtaks "aðkoma", sem segir ekki neitt um það hver hlutdeild viðkomandi eigi að vera.
Ég hef komið að slysi, en ekki átt þar neinn þátt að máli. Hvað er átt við með "aðkomu" ríkissjóðs að kjarasamningum? Lítur ráðherra þá inn í karphúsið og horfir á menn undirrita? Auðvitað ekki. Hér er átt við að ríkissjóður taki þátt í samkomulagi með einhverjum ráðstöfunum.
Þessir aðkomumenn fjölmiðlanna ættu að venja sig á að hugsa skýrt, því öðru vísi geta menn ekki ritað skýrt.

Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)